Föstudagur, 3. September, 2010

Helstu fréttir


  • Kínverska húsnæðisbólan er í þann vegin að springa

    Fyrirætlanir Obama um að gera Bandaríkin að framleiðsludrifnu útflutningsríki er að verða að engu.  Í Kína hefur myndast fasteignabóla sem er í þann vegin að springa, með ófyrirséðum afleiðingum fyrir áframhaldandi vöxt alþjóðaviðskipta.

    Skoða »
  • Hvað kemur bandarískum efnahag til bjargar?

    Peter S. Goodman greinir frá dökkum horfum í bandarískum efnahag.  Viðvarandi verðhjöðnun og óðaverðbólga vega salt og nálaraugað að hæfilegri verðbólgu og hagvexti verður sífellt þrengra

    Skoða »
  • Bandaríski seðlabankinn er tilbúinn að prenta 1 billjón dala ef þörf krefur

    Um 40 seðlabankastjórar hvaðaæva úr heiminum hittust í Bandaríkjunum til að stilla saman strengi sína.  Bandaríkjamenn eru tilbúnir til að beita óvenjulegum aðferðum til að viðhalda bata í bandaríska hagkerfinu.  Myndin hér að ofan tengist fréttinni ekki beint en þetta er ekki jógastaða. 

    Skoða »
  • Sieglitz varar Evrópu við aðhaldsaðgerðum, en Kotlikoff varar Bandaríkin við auknum ríkishalla

    Joseph Stieglitz segir líkur á annarri kreppu í Evrópu vegna strangra aðhaldsaðgerða ríkja Evrópusambandsins, en Laurence Kotlikoff varar Bandaríkjamenn við sögulegri óðaverðbólgu vegna sívaxandi skuldbindinga bandaríska ríkisins.  Báðir telja hættu á nýrri kreppu.

    Skoða »

Fréttir

Innri markaðir Evrusvæðisins eru ónýtir

Hagvöxtur í Þýskalandi reiknast 9% á árs grundvelli, en ekki er allt sem sýnist.  Mikill mælanlegur hagvöxtur á rætur sínar að rekja til lágra launa innan Þýskalands, lélegrar innlendrar eftirspurnar og ekki síst til gríðarlegs samdráttar sem varð á seinasta ári.  Wolfgang Munchau ritstjóri Financial Times segir innri markaði Evrusvæðisins ónýta, og að Evrópu stafi meiri hættu af þeim en skuldastöðu einstakra aðildarríkja.

 

 

Kínverska húsnæðisbólan er í þann vegin að springa

Fyrirætlanir Obama Bandaríkjaforseta um að gera Bandaríkin að framleiðsludrifnu útflutningsríki er að verða að engu.  Í Kína hefur myndast gríðarleg fasteignabóla sem er í þann vegin að springa, með ófyrirséðum afleiðingum fyrir áframhaldandi vöxt alþjóðaviðskipta.  Ben Simpfendorfer skrifar í dag grein á Bloomberg fréttaveituna þar sem hann nefnir fimm atriði sem hafa beri í huga þegar kínverskir hagvísar eru skoðaðir.  Ekki er allt sem sýnist.

 

 

Reinhart hjónin segja seðlabankastjóra heimsins of bjartsýna

Hagfræðingarnir Carmen og Vincent Reinhart telja ráðstefnu 40 seðlabankastjóra hvaðanæva úr heiminum hafa byggt á of mikilli bjartsýni.  Rannsóknir á efnahagsáföllum seinustu 75 ára leiða líkur að erfiðir tímar séu framundan næstu 10 árin eða lengur.  Stjórnmálamenn mega ekki byggja efnahagslega stefnumörkun sína á of mikilli bjartsýni.

 

 

Hvað kemur bandarískum efnahag til bjargar?

Á New York Times og CNBC greinir Peter S. Goodman frá dökkum horfum í bandarískum efnahag.  Viðvarandi verðhjöðnun og óðaverðbólga vega salt og nálaraugað að hæfilegri verðbólgu og hagvexti verður sífellt þrengra.  Þingkosningarnar í í nóvember gera stjórnmálamönnum erfitt fyrir að gangast í frekari skuldsetningu enda hafa bæði repúblikanar og demókratar útilokað stóraukna skuldsetningu til að koma á hagvexti og bættum atvinnuhorfum.

 

 

Bandaríski seðlabankinn er tilbúinn að prenta 1 billjón dala ef þörf krefur

Myndin kemur efni fréttarinnar ekki beint við

Um 40 seðlabankastjórar hvaðaæva úr heiminum hittust í Wyoming í Bandaríkjunum til að stilla saman strengi sína.  Ben S. Bernanke seðlabankastjóri Bandaríkjanna sagðist tilbúinn til að beita óvenjulegum aðferðum til að viðhalda bata í bandaríska hagkerfinu, en hagrýnar reikna með að seðlabankinn komi til með að prenta því sem nemu 1 billjón dala á næstu misserum.  Hagfræðingar eru svartsýnir og bendir flest til nýrrar kreppu.  Hlutabréfavísitölur tóku samt við sér undir lok dags.

 

Sieglitz varar Evrópu við aðhaldsaðgerðum, en Kotlikoff varar Bandaríkin við auknum ríkishalla

 

Nobelsverðlaunahafinn Joseph Stieglitz segir líkur á annarri kreppu í Evrópu vegna strangra aðhaldsaðgerða ríkja Evrópusambandsins, en Laurence Kotlikoff hagfræðiprófessor við Bostonháskóla varar Bandaríkjamenn við sögulegri óðaverðbólgu vegna sívaxandi skuldbindinga bandaríska ríkisins.  Báðir telja hættu á nýrri kreppu.

 

 

Moody's telur hrun á fasteignamarkaði geta leitt til nýrrar kreppu í Bandaríkjunum

 

Samdráttur er hafinn á bandarískum fasteignamarkaði og telja hagfræðingar líkur á annarri kreppu ef fram heldur sem horfir.  Mikið atvinnuleysi, fjöldagjaldþrot heimila og lækkandi fasteignaverð skilar sér í minnkandi neyslu, lækkandi tekjum fyrirtækja og minni hagvexti. 7.3 milljón íbúða er komnar í eigu lánadrottna í Bandaríkjunum.

 

 

Verðbólga í Evrópu, verðhjöðnun í Bandaríkjunum

Nú þegar Vesturlönd standa andspænis öðrum samdrætti í heimsbúskapnum virðast eru viðbrögð stjórnmálamanna ólík sitt hvoru megin við Atlantshafið.  Verðbólga hækkar mikið í Evrópu, og stefnir þar í sögulegan niðurskurð í ríkisfjármálum.  Hins vegar er enn mikill niðurþrýsingur á verðbólgu í Bandaríkjunum, og bregðast yfirvöld við með enn meiri peningaprentun.

 

 

Samdráttarskeið er hafið í Japan

Blablabla

Samdráttarskeið er hafið í Japan og mun hagvöxtur þar í landi verða mjög berskjaldaður ef kemur til annarrar kreppu í stærstu hagkerfum heimsins.  Of sterkur gjaldmiðill, verðhjöðnun, miklar skuldir japanska ríkisins og lítil innlend eftirspurn bendir til lítils hagvaxtar og jafnvel samdráttar um langt árabil.  Kína og Þýskaland byggja á sama efnahagslíkani og þau ríki gætu hæglega hlotið sömu örlög ef þau bregðast ekki fljótt við til að efla innlenda eftirspurn.

 

 

Þjóðverjar eru berskjaldaðir fyrir eftirspurn skuldugra þjóða

Þýska stjórnarskráin

Aukinn viðskiptahalli Bandaríkjanna og veiking evrunar hefur skilað sér í miklum hagvexti í Þýskalandi.  Hagkerfi Þjóðverja er samt sem áður mjög berskjaldað og viðkvæmt fyrir erlendri eftirspurn og hagvexti skuldugra þjóða.  Ef Bandaríkin stefna í annan samdrátt í efnahagslífinu, mun það koma mjög illa við Þýskaland og allt Evrusvæðið.

 

 

Pistill

Askja Pandóru og þingnefnd Atla Gíslasonar

Ef þingnefnd undir verkstjórn Atla Gíslasonar þingmanns Vinstri grænna hyggst kalla saman Landsdóm yfir fyrrverandi ráðherrum Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks, mun hún opna gættir sem erfitt verður að loka aftur.  Þá er hætt við að nústarfandi ráðherrum Samfylkingar og Vinstri grænna verði einnig stefnt, þegar á líður, vegna stjórnarskrárbrota og landráða.

Eftir Gunnar Kristin Þórðarson

 

 

Aðsent efni

Alþýðubandalagið rís upp frá dauðum

"Við búum í landi vinstriaflanna. Því verður ekki neitað. Skyndilega vöknum við Íslendingar upp við þá staðreynd að í ríkisstjórninni, hinni tæru vinstristjórn, sitja nú átta af tíu ráðherrum með pólitískan bakgrunn úr Alþýðubandalaginu sáluga og sá níundi, byltingarforinginn Ögmundur, sem hefur örlög stjórnarinnar í hendi sér, var óháður í þingliði Alþýðubandalagsins í upphafi síns pólitíska ferils. Jóhanna er svo ein eftir með annan bakgrunn", segir Stefán Friðrik Stefánsson.

 

 

 

 

 
eFréttir | efrettir@efrettir.is | Sími: 861-5777

Þessi vefur var unninn og er haldið við af Netvistun ehf
Netvistun - Heimasíðugerð, hugbúnaðarlausnir og hönnun